Er allt að fara til andskotans?

Kastljósþáttur kvöldsins var dæmigerður fyrir hvert vökul augu fjölmiðlamanna beinast á Íslandi og hvað þykir merkilegt til umræðu og rifrilda. Tveir drengir sem tekið hafa þátt í söngvakeppni sem snýst ekki um músík í listrænum skilningi voru þar mættir í hefðbundinni stellingu þar sem maður er settur gegn manni. Tilefnið: Annar þeirra sagði tapsár eftir að hafa unnið keppnina að hæst bylji í tómum tunnum. Hjó það nærri rumunum sem börðu tunnur í miklum móð með tilheyrandi hóum og hæjum. Greinilega þarf að afgreiða þetta. Skildi einhver um hvað málið snerist? Og þeir sem skildu það, – var þetta eitthvað mál?

Á meðan þessir fallegu drengir karpa um ekki neitt sem engu máli skiptir brennur Róm. Aflabrestur, bankakreppa og óleyst velferðarmál sem menn trössuðu að leysa á meðan ástandið var ofurgott hin síðari ár.

Ég get ekki verið annað en sammála Grími Atlasyni sem bent hefur á það undanfarna daga að það skjóti meir en lítið skökku við að menn skuli vera uppteknir af því að leika valdabrölt i höfuðborginni, hneykslast á bloggi Össurar um Gísla Martein og sjálfsagt hefur hann nefnt eitthvað annað hégómlegt….. á meðan afleiðingar af aflabresti í þorski og loðnu hangir ekki aðeins yfir fólki á landsbyggðinni og reyndar Íslendingum öllum ef þeir hafa fulla rænu. Plús það að nú blasir við að hin svokallaða útrás virðist vera plat.

Tekur enginn alvarlega þegar sjálfur Jón Ásgeir Jóhannesson lýsir því yfir að bankarnir standi frammi fyrir gjaldþroti? Þessi maður er mjög snjall á sínu sviði. Hann hefur ekki lagt í vana sinn að vera með stórkallalegar yfirlýsingar hvað sem á hefur dunið. Ég hef þá mynd af honum eins og hver annar hér á Íslandi að hann vilji helst halda sig til hlés, stunda sitt brask og vera ekki að blanda sér í pólitískt þras. Ef þetta er rétt greining get ég ekki túlkað þessa yfirlýsingu á annan hátt en þann að maðurinn sé að lýsa mikilli örvæntingu eigenda eins af stærstu bönkum landsins. Það er eins og enginn hafi hrokkið upp við þetta tal stráksins í Bónus! Pólitíkusar komust upp með að sussa á þetta í viðtölum og þar með var málið búið. Best að tala um skensið í Össuri eða Júróvisjón.

Bankakreppa á Íslandi er grafalvarlegt mál. Fari einn þeirra á hliðina fær Ísland allt alvarlega slagsíðu. Eftir því sem mér skilst er um lausafjárkreppu að ræða. Menn þurfa að eiga pening til að borga á næsta gjalddaga. Ef banki er í vandræðum með þetta þarf hann að hafa bakhjarl. Og það er gjarnan seðlabanki hvers lands og í Evrópu er það seðlabanki þeirra þar í sveit. Á Íslandi er þetta ekki fyrir hendi vegna þess einfaldlega að bankana vantar ekki íslenskar krónu þar sem öll þeirra viðskipti sem máli skipta eru í erlendri mynt einkum evrum. Þetta getur þá haft í för með sér að eigi menn ekki Björn að baki sér þurfi þeir að selja eignir á niðursettu verði til að eiga fyrir afborgunum. Vont mál það. Ef þeir væru hins vegar hluti af hinu evrópska fjármálakerfi í raun eins og bankar í Þýskalandi eða Spáni þá eiga þeir við annan seðlabanka en þann sem Davíð stjórnar með krónum sem engu máli skipta.

Ég get ekki betur séð en við séum að súpa seiðið af því að hafa ekki gengið götuna alla leið frá því Ísland skrifaði undir samninginn um evrópska efnahagssvæðið. Það eru orðin býsna mörg ár síðan og nú spyr maður hvers vegna menn áttuðu sig ekki á því að fyrst þetta skref var stigið væri nauðsynlegt að undirbúa hið endanlega skref að ganga í Evrópusambandið. Hélt hinn íslenski heimalningur að hægt væri að “fá allt fyrir ekkert” með því að snerta Evrópu en forða sér frá því að verða þar eins og hver annar hreppur? Nú lendum við í vandamálum vegna þess að við höfðu fullan aðgang að Evrópu en komumst ekki út úr því nema við illan leik vegna þess að við erum ekki inni í Evrópu…. við erum ekki þáttur í efnahags- og stjórnsýslukerfinu í þeirri sveit.

Og var þessi einangrunarstefna öll komin til af því að íslenskir kapítalistar urðu einir að græða á fiski? Íslenskur sjávarútvegur er rekin með gróða- og hagkvæmnissjónarmið að leiðarljósi og skiptir þá engu máli hver á þetta eða hefur aðgang að því. Þýskir eða portúgalskir útgerðarmenn mundu ekki haga sér á neinn hátt öðru vísi en Samherjafrændur. Getur fólk í sjávarbyggðum íslenskum huggað sig við það að það skuli vera íslenskir útgerðamenn í fullvalda landi sem svifta það lyfibrauðinu? Er einhver munur á misgjörðarmönnum eftir því hvort þeir eru svartir eða hvítir, hinsegin eða streit, íslenskir eða spænskir, karlar eða konur…. ?

4 svör

  1. Orð í tíma töluð.

    Gæti ekki verið þér meir sammála með kvótakóngana á Íslandi. Og ég er reyndar sannfærður um að ef Ísland væri í Evrópusambandinu þá kæmist ekki nokkur kjaftur upp með að nauðga sjávarbyggðunum líkt og kvótakóngarnir eru búnir að vera dunda sér við undanfarna tvo áratugi.

  2. Það hefur svo sannarlega verið varað við þessu öllu síðastliðin ár.
    Þjóðin hefur hins vegar verið upptekin við veisluhöld og afskrifað skynsama menn eins Þorvald Gylfason sem “nöldurseggi”.

  3. http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/02/25/breytingar_hja_kaupthingi_losa_um_lausafe_upp_a_130_2/

    Góð grein og greining. Þú nefnir einmitt að bankar þurfi að fara að selja eignir fyrir slikk til að eiga fyrir afborgunum. Smellpassar við þennan link.

  4. Ég er svo sammála þér!

Skildu eftir svar