Ég komst loksins til þess að sjá þessa stuttmynd hollensku bullunnar í gær. Hún er ekki merkileg þykir mér. Mestur hlutinn eru fréttamyndir sem við höfum öll séð og inn á milli eru tilvitnanir í Kóran sem boða mönnum að fremja ofbeldisverk fyrir Alla. Hægt er að gera nákvæmlega sams konar samantekt í myndmáli með því að birta fréttamyndir frá Ísrael/Palestínu ásamt með tilvitnunum í Biblíuna. Það er líka hægt að klipppa saman tilvitnanir í Bush um guð og land og skeyta þeim við stríðsæsingar hans í bland við fréttamyndir af flóabardögum.
Þegar hollenski þingmaðurinn hefur skeytt þessu saman slengir hann fram upplýsingum um fjölgun múslima í Evrópu og Hollandi. Líklega ber okkur að skilja þetta sem svo að einhver múgur sé að taka yfir Evrópu. Boðskapurinn er sá að okkur beri að óttast fólk almennt sem flytur úr löndum araba og persa til Evrópu. Staðreyndin er aftur á móti sú að þetta fólk upp til hópa fer með friði og það er líklega jafnólíkt innbyrðis í menningarlegum skilningi og Evrópumenn sjálfir.
Ástæðan fyrir því að ofbeldismenn vaða uppi og múslimar í Evrópu eru undir miklum þrýstingi að samsama sig trúarbrögðum og trúbræðrum er tvíþætt að minni hyggju. Í fyrsta lagi hafa hryðjuverkamenn ekki verið eltir upp eins og hverjir aðrir glæpamenn heldur er vandamálinu stillt upp sem pólitískri vörn fyrir vestrænt frelsi gegn miðaldamyrkrinu í austri. Þannig er allri heimsbyggðinni skipað í tvær fylkingar. Í öðru lagi búa innflytjendur við alls konar óþolandi misrétti og mismunun en vantar samtímis pólitískan farveg til að takast sá við það. Verkalýðshreyfingin og flokkar hennar ásamt vinstrihreyfingunni allri hafa brugðist hér að mínu viti.
Einhver hefur verið eldsnöggur að skrifa um þessa stuttmynd á Wikipedia og er ekki vitlaust að renna yfir það. Annars er ágæt grein hér í nýjasta hefti Soialist Register um Íslam, íslamisma og vestrið eftir Aijaz Ahmad. Svo er hér frekar skemmtileg grein í Guardian eftir Ali Eteraz.

1 comment
Comments feed for this article
3. apríl 2008 kl. 12:58
Helgi Viðar
Ég get nú ekki alveg verið sammála þessari greiningu þinni á myndinni né vanda Íslams í Evrópu. Myndin er gagnrýni á Íslamisma og Íslamsvæðingu samfélagsins en ekki trúarbrögðin sem slík. Ég veit ekki hve stór hluti múslima í Evrópu er hallur undir þessa hugmyndafræði. Þó hef ég heyr að um 40% múslima í Bretlandi hafi haft samúð með málstað þeirra sem frömdu hryðjuverkin í London 2005. Eitt er þó víst að eftir því sem múslimum fjölgar í Evrópu þeim mun fleiri áhangendur fær Íslamisminn og Íslamsvæðingin. Salman Rushdie hefur sagt stjórnmálamenn vanmet þá ógn sem stafar af Íslamsfasismanum.
Helsta vandamálið við meðhöndla Íslamista sem glæpamenn og uppræta þá þannig er að fyrst þurfa þeir að hafa framið glæp. Bandaríkjamenn hafa reyndar ekki sett það svo mikið fyrir sig eins og kunnugt er. Leyniþjónustur ýmissa Evrópulanda standa stöðugt vaktina í leit að vísbendingum um hryðjuverk, þannig að ekki vantar vilja til að hafa hendur í hári múlslimskra glæpamanna.
Flestir múslimar þurfa víðtækan félagslegan stuðning til að verða samkeppnisfærir í vestrænum samfélögum. Þeim dugar nefnilega ekki jöfn tækifæri því þeir eru ekki í sömu aðstöðu og innfæddir til að nýta þau og er tungumálið þar fyrsta hindrunin. Nauðsynlegur stuðningur kostar mikla peninga og fáir vilja borga brúsann. Múslimum úr vanþróuðum samfélögum var hleypt inn í Evrópu af því að það vantaði fólk í láglaunastörfin. Þeir voru því flestir lítt mentaðir. Í ofanálag fluttu þeir með sér vanþróðaða samfélagshætti og vanþróuð trúarbrögð. Vanþróuðum trúarbrögðum fylgir svo ofstæki og allskyns bábiljur sem erfiðaðr eru viðureignar.
Þetta er vandamál er ávöxturinn af pólitískum réttrúnaði í innflytjendamálum. Staðreyndin er nefnilega sú að því ólíkari sem samfélagsgerð og trúarbrögð innflytjandans eru, þeim mun dýrari og erfiðaðri verður aðlögun hans að nýja samfélaginu. Í sama hlutfalli fylgja svo félagslegu vandamálin.