Kómísk forsjárhyggja á Landspítala

Ég verð að bregða mér úr prófkjörshamnum því ég rak mig á kómíska forsjárhyggju í formi ritskoðunar í dag. Alveg hreint sprenghlæilega og það á Landspítalanum sem er stærsti vinnustaður landsins. Sagan er svona:

Þannig er mál með vexti að það er bloggsíða á mínu nafni á wordpress.com sem átti að vera um hugræna atferlismeðferð. Þar eru margir gagnlegir tenglar fólki til sjálfsbjargar. Þetta hafa vinnufélagar mínir stundum bent skjólstæðingum okkar á og sýnt þeim síðuna eða farið sjálfir inn og prentað út fyrir fólk.

Nú ber svo við að tölvur starfsmanna Landspítalann banna skyndilega aðgang að þessu eins og um klám sé að ræða. Hvers vegna? Vegna þess að búið er að loka á allar „sósíal” síður inn á Landspítalann. Og af hverju datt nú framkvæmdastjórninni þetta í hug? Jú, fólk er að eyða alltof miklum tíma í vinnunni á slíkum síðum…. MSN, bloggsíður, Facebook, leikjavefir og þar fram eftir götunum. Eða svo halda hinir háu herrar og frúr.

Vandamálið við þetta er að fjölmargar gagnlegar vefsíður sem verða að teljast faglegar, einkasíður prófessora við marga háskóla, kennslu- og hjálparefni er einmitt birt á bloggformi vegna þess að það er ódýrast og kostar ekki krónu að hanna og halda úti slíkri vefsíðu. Annað vandamál er að margt fólk er á vöktum og þarf að gera sér eitthvað til dundurs meðan það vakir og allt er með kyrrum kjörum. Hvers á þetta fólk að gjalda? Þriðja vandamálið er að það eru matarhlé og kaffihlé þar sem starfsmenn ættu að hafa frjálsar hendur hvort þeir lesa Moggann eða blogg.

Vandinn sem átti að leysa með þessu er að framkvæmdastjórninni þykir einhver hópur fólks ekki halda sig að vinnu. Dettur þessu fólki ekki í hug að ákveði einhver að hangsa í vinnunni finnur hann sér eitthvað annað til að hanga yfir? Og hvers vegna er þá ekki lokað á YouTube? Það er ekki hægt því kennsluefni er geymt þar inni. Og hvers vegna er leyft að bera Mogga og Fréttablað inná spítalann? Eða hafa kaffistofur og jafnvel myndir á veggjum? Fólk gæti glápt á þetta tímunum saman. Þarf ekki líka að hafa eftirlit með því um hvað fólk er að tala sín á milli í vinnutímanum, – það gæti verið að „sósíalisera”?

Fáránleikinn getur verið stórkostlega skemmtilegur. Nú er Eyjan að verða aðalvettvangur landsins fyrir pólitískt blogg. Svo vill til að hægt er að komast inn á bloggin á Eyjunni á Landspítalanum (en ekki Moggabloggið)…. nema reyndar eitt blogg og það er mitt blogg. Mitt blogg er ekki vistað hjá Eyjunni heldur wordpress.com og þess vegna getur enginn komist inná það Eyju-leiðina og heldur ekki hina leiðina.

Finnst ykkur þetta ekki fyndið? Hvers vegna eru stjórnendur og yfirmenn ekki bara skammaðir fyrir að halda ekki fólki sínu við vinnunna? Hvað eru þeir að gera – voru þeir kannski á „sósíalsíðunum” og máttu ekki vera að því? Eða var þetta svona mikið vandamál hjá kontóristunum að þeir héldu að þetta væri landlægt út um allan spítala?

10 svör

  1. Þú getur heldur ekki skoðað mitt eyjublogg á LSH :-)
    Skemmtilegar pælingar annars – hvað með sjónvarpið!

  2. Einmitt – hvað með sjónvarpið? Hvernig á að passa að starfsfólkið sé ekki að glápa á það. Hvað með aðra forsjárhyggju? Ég fæ engan frið með pípuna mína neins staðar nema inni í bílnum mínum (samkvæmt Bubbadómnum er ég þar í heimilisfriði). En hvað með þetta fólk sem er alltof feitt og með háan blóðþrýsting? Af hverju er því ekki beint með valdi að salatbarnum í mötuneytinu? Hvers vegna er fólk ekki vigtað, tekinn sykurstatus, blóðþrýstingur og fleira áður en það gengur inn í mötuneytið?

    Hvað varð eiginlega um “jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar”?

  3. Það er mikið faglegt efni á félagslegum síðum eins og upplýsingatæknisviði LSH var bent á, en þau hafa haldið þessari afstöðu til streitu. Sumt af þessum tækjum er ómetanlegt til að fá endurgjöf.

    Reyndar eru félagslegu síðurnar og endurgjöf sameiginlega það sem er yfirleitt átt við þegar rætt er um Vef 2.0.

    Ef upplýsingatæknisvið LSH telur að fólk eigi að sleppa því að nota allt þetta efni, hvernig verður þá tekið við öðrum tækninýjungum?

    Fylgdi aukinn kostnaður þessari notkun? Var fólk að nota dýrmæta bandvídd? Það er rétt að heyra skýringarnar beint frá upplýsingatæknisviðinu. Æ, ég gleymdi því, þau hafa ekki leyfi til að lesa þetta sem ég skrifaði.

    kveðja, Sveinn Ólafsson.

  4. Ég held Sveinn að upplýsingatæknisvið hafi ekkert með þetta að gera. Satt að segja held ég að það fólk sé skynsamara en svo. Það er framkvæmdastjórn spítalans sem tók þessa ákvörðun.

  5. …eða svo var mér sagt í tölvupósti í dag.

  6. Sæll.
    Já, það er rétt, framkvæmdastjórnin tók ákvörðunina, upplýsingatæknisviðið sér bara um framkvæmdina. En varla breytir það miklu, þau geta ekki lesið þetta hvort eð er?
    kveðja, Sveinn Ólafsson.

  7. Þetta mál er með ótrúlegt. Hver tekur annars ákvarðanir um hvaða síður eru í lagi og hvaða síður ekki? Hver er netlögga landspítalans?

    Ég vorkenni mér svo sem ekki mikið. Hef ekkert rosalegan tíma til að vera á blogginu. ég vorkenni hins vegar vinkonu minni. Hjúkku sem vinnur á næturvöktum. Hún er búin með öll sín verk 2.30 og þarf að halda sér vakandi til 07.00. Hingað til hefur hún gert það með því að vera á facebook, skoðað bloggfærslur o.þ.h. Nú er mbl.is bara í boði. Ekki mikið stuð þar á næturnar.

  8. LSH í hnotskurn Pétur.

    En gangi þér vel !

  9. Orson Welles… say no more…

  10. árans, föttuðu þeir þetta með wordpress! Við höfum ekki verið svo mörg þar inni að það lén slapp fyrir horn í byrjun :P

    En já, þetta er alveg út í hött…

Skildu eftir svar