Ég sé að Einar Kristinn Guðfinnsson fyrrum ráðherra tapaði slagnum um fyrsta sætið í próflkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir vestan. Það gerði Guðlaugur Þór í Reykjavík og líka Þorgerður Katrín í Kraganum. Hafa þá ekki allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hætt eða runnið á rassinn í prófkjörunum? Munum hið síkveðna – stefnan er í lagi, fólkið brást!
Flokkað undir: Pólitíska þrefið
einar kr er auli
Þá eru það bara Samfylkingarráðherrarnir sem eru eftir.
Hann er ekki fallinn af þingi fyrr en að þjóðin hefur skilað atkvæði sínu og það er það sem gildir.
)
Vonandi hafa allir þeir sem enn hafa geð í sér að kjósa D vit á því að strika þennan kall út af lista.
Síðan vona ég að fólk hafi vit á því að nota útstrikanir í kosningunum í vor.
Strikum út vanhæft fólk þótt við kjósum lista. (En munið bara að strika út af þeim lista sem þið kjósið, þótt manni langi til að fikta í öðrum listum líka
Mér sýnist ráðherrar Samfylkingarinnar hafa fengið færri atkvæði í prófkjörum en þeir stefndu að – nema helst Jóhanna og Möller.
Hvað með Björgvin G?
Eða, fékk hann kannski heldur færri atkvæði í fyrsta sætið en hann stefndi að og hávær krafa grasrótarinnar um endurnýjun telst þar með uppfyllt?
Rétt er það hvað Sjálfstæðisflokkinn varðar, en enn þá sitja föst á fleti
fyrir bæði Össur og Jóhanna. Samkvæmt Ruv. var skýrala seðlabankans
kynnt í ríkisstjórn í feb. 2008. Hvar voru þau þá. Þetta með að bera
ábyrgð og axla ábyrgð er nú að verða dálítið broslegt í þessu samhengi
Þarna hafa kjósendur í prófkjörum sjálfstæðisflokksins hafnað ráðherraliði sínu….og það er vel.
Samsíða er að eiga sér stað kynslóðaskifting og gagbrýnin skoðun á frammistöðu flokksins og stefnu….og er það vel.
Nú er boðið uppá nýjan sjálfstæðisflokk þar sem ráðherrum hrunsins er hafnað.
Ef litið er til vinstri flokkanna þá er málum öðruvísi farið þar.
4 af 5 ráðerrun Samfylkingarinnar ú hruninu halda áfram og eru í efstu sætum. Þar ,eð talinn sjálfur bankamálaráðherrann.
Eini Samfylkingaráðherrann sem hættir gerir það vegna veikinda!!!.. Þvilíka ábyrgðatilfinningu og veruleikafyrringu er ekki að finna á byggðu bóli.
Og VG er lítið betri með sama liðið áfram og sömu gagnslausu úrræðin.
Með uppstyllingu Samfylkingarinnar með sína 4 ráðherra hrunsins eru þeir að grafa sína eigin gröf.