Ég er ekki hissa á því að Ísland sé á hliðinni ef minnisblöð háttsettra embættismanna sem véla með lifibrauð okkar og lífshagsmuni eru sömu gerðar og það sem við höfum nú fengið að lesa. Eða tekur enginn eftir því að þetta er ekkert nema snakk? Þessi sagði þetta og hinn sagði hitt…. og ómögulegt að átta sig á hver niðurstaða höfundar minnisblaðsins er. Það má skilja hann sem svo að allt sé að fara til andskotans en samt ekki. Landsbankamenn sögðu góðar sögur sem menn trúðu og Seðlabankamenn sefuðu áhyggjur manna vegna Icesave. Seðlabankamenn virðast líka hafa látið í ljós að fjármálakerfið færi þá aðeins á hliðina ef til heimskreppu kæmi.
Ég hélt að maður ætti í svona minnisblöðum að reyna að draga saman einhverjar niðurstöður þannig að ekki færi milli mála um hvað hefði verið rætt, hverjar ábendingar viðmælenda hefðu verið, andsvör Seðlabankamanna og síðast en ekki síst hvaða atriði það voru sem íslensk stjórnvöld og Seðlabankinn þyrftu sérstaklega að gaumgæfa.
Mér kemur því ekki á óvart að enginn hafi tekið þetta alvarlega og nánast farið af fundinum, beint uppí flugvél til að sitja blaðamannafundi með auðjöfrum og munnhöggvast við útlenda blaðamenn. Pappírsgagn þetta er eins og skýrsla fulltrúa í áhugamannafélagi sem hann gefur stjórn af samtölum sínum við fulltrúa í öðru áhugamannafélagi. Hafi Davíð Oddsson viljað láta taka mark á sér hefði hann átt að skrifa betur og skýrar eða tekið sig til og lesið Writing Reports and Memos for Dummies og skilað af sér almennilegu minnisblaði.
Það sem mér þykir merkilegast af öllu er samtalið við Geir Haarde sem ég heyrði í útvarpinu í dag. Hann virtist ekki draga í efa þar að Seðlabankamenn hefðu verið að tilkynna honum og hans fólki að hér stefndi í þrot heldur sagði að á þeim tíma hefði þá þegar verið erfitt um vik að bregðast við. Með öðrum orðum verður hann ekki skilinn öðru vísi en hann telji að í febrúar á síðasta ári hafi menn verið búnir að missa af lestinni. Kann að vera rétt. En hvernig stendur þá á því að hann og aðrir málsvarar kapítalismans stöguðust á því í sífellu að enginn hefði séð þessa kreppu fyrir og síst af öllu hrun spilaborgar íslensku bankanna?
Flokkað undir: Pólitíska þrefið
Algjörlega sammála. Þetta minnisblað er sönnunargagn um vanhæfni DO í starfi Seðlabankastjóra – mér er til efs að nokkur framhaldsskólanemi hefði komist upp með að skila svona verkefni vegna óboðlegrar meðferðar á heimildum, hver hefði búist við því að Davíð væri slíkur léttvigtar dilettant – og allur í kjaftinum, kynni ekki að skrifa boðlega skýrslu. Það getur enginn maður tekið mark á þessu – nema sem gagni um vanhæfni í æðstu stjórn Seðlabankans.
Var þetta ekki bara þannig að allis sögðu ósatt.
Bankastjórarnir, endurskoðendurnir,
árskýrslurnar, fjörmiðlarnir….allir.
Svo kemur Seðlabankinn og leggur fram af lítillæti ódagsett minnisblað með þessum kunnu viðvörunum.
Og hverju trúðu menn betur?
Bankastjórunum, endurskoðendunum, öllum ársskýrslunum, fjölmiðlunum….eða ódagsettu minnisblaði Daviðs?
Svarið liggur fyrir og afleiðingarnar eru viðfangsefni dagsins.
Sökudólkurinn er augljóslega ekki Davíð eða stjórnmálamennirnir.
Heldur þeir sem sögðu okkur ósatt: Bankastjórarnir, endutskoðendurnir og fjölmiðlasnir sem allir lugu að okkur.
Og hverjir nutu lygarinnar?
það voru útrásarvíkingarnir og bankastjórarnir.
Hefðu menn trúað Davíð betur en Bankastjórunum og þeirra liði væri staðan hér önnur.
Ég held að þú ættir að kynna þér bókina “Reading Memos For Dummies” þ.e.a.s. ef þú ert þá ekki lesblindur. Þó ég sé nú ekki nema í meðallagi greindur get ég ekki skilið skýrsluna öðruvísi en svo að hér sé allt að fara til andskotans og í skýrslunni er meira að segja niðurstaðan sem þú saknaðir svo sárt. Ertu kannski ekkert búinn að lesa þetta Pétur? Eða varstu kannski búinn að ákveða að skýrslan væri ómerkileg áður en þú last hana? Hvort er það?
2. nóvember 2008
Geir H. Harde segir ósatt um ástand efnahagsmála á Íslandi – blaðamannafundur í ráðherrabústaðnum.
Sænskir fjölmiðlar:
Men han påminde om att krisen i hans ögon inte är helt nattsvart. – Sedan 1995 har den isländska levnadsstandarden ökat med 60 procent. Nu har vi flyttats tillbaka omkring fem år. Det är ingen katastrof.
Föstudagur 31. október 2008
Í aðdraganda bankakrísunnar á Íslandi var Geir H. Haarde forsætisráðherra ítrekað staðinn að því að greina ekki satt og rétt frá gangi mála, tilefni leynifunda og alvarleika þeirra. Prófessor í stjórnmálafræði segir Geir augljóslega hafa gefið villandi skilaboð. Bankarnir féllu einn af öðrum, en eftir standa orðin um að ekkert væri í gangi.
„Það er náttúrulega alltaf slæmt fyrir stjórnmálamenn að segja ósatt. Ég veit nú ekki hvort hann segir beinlínis ósatt þó hann gefi augljóslega villandi skilaboð, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, aðspurður um svör Geirs H. Haarde í fjölmiðlum þegar í raun mikilvægustu mál þjóðarinnar voru til umræðu á leynifundum
Gunnar… það þýðir ekkert að lesa þetta minnisblað með gleraugum síðari tíma. Hvenær er höfundur að segja að allt sé að fara í þrot og hvenær er hann að hafa það eftir öðrum? Og hvar er skýr og klár niðurstaða? Fræðimenn eru aldir upp í að sjóða niðurstöður langra greina niður í u.þ.b. 300 orða útdrátt. Þetta kann höfundur minnisblaðsins ekki og sér ekki ástæðu til. Í minnisblaði sem þessu verður að vera algerlega ljóst hver segir hvað. Að mati Seðlabankans er ekki annað að sjá á minnisblaðinu en Landsbankinn sé í góðum málum og ekkert tundur fólgið í Icesave. Gleymdir þú aða lesa minnisblaðið áður en þú fórst að verja það? Niðurstaðan hefði getað verið þessi:
1. Íslensk fjármálafyrirtæki er of stór fyrir þjóðina og ríkisstjóð í þeim skilningi að lendi þeir í vandræðum setur það efnahag þjóðarinnar á hliðina.
2. Íslenskir bankar hafa þanist út vegna þess að lánsfé hefur verið mjög ódýrt sem það verður ekki til frambúðar.
3. Íslenskir bankar geta ekki endurfjármagnað þessi ódýru lán á sama verði og ekki verður heldur framboð á lánum til bankanna yfirleitt næstu 12 til 24 mánuði og munu þeir því lenda í alvarlegum vandræðum.
4. Icesave-leiðangurinn er stórhættulegur og mun kalla yfir okkur hörmungar.
Þetta má vissulega lesa út úr minnisblaðinu – þ.e. einhverjir voru þessarar skoðunar. En hvort Seölabankamenn trúðu því er allsendis óljóst.
PS: Það þurfti ekki Davíð til að vara við. Það var fullt af fólki sem varaði við og gagnrýnir blaðamenn útlendir sem spurðu óþægilegra spurninga. Menn voru aftur á móti keyptir til að skrifa gegn þessu, stjórnmálamennirnir höfnuðu gagnrýninni eins og óráðshjali. Allt sem kemur fram í minnisblaðinu var á sveimi um þessar mundir.
þetta er minnisblað….þetta er ekki skýrsla, greinagerð, ritgerð..allt sem krefst efnisatriða, heimilda og þar fram eftir götunum….þetta er minnisblað. Það er jafnframt einfeldni að ætla að þetta sé einhver einræða DO…..það koma fleiri að svona blaði og vita af innan bankans.
Þetta er furðulegt skjal – skrifað á auðar arkir af óþekktum höfundi fyrir óþekktan móttakanda á óþekktum degi og stað.
TRÚNAÐARMÁL er stimplað stórum stöfum á hverja örk – hver er að krefjast trúnaðar af hverjum?
O.s.frv.
Skjalið gæti þess vegna hafa verið skrifað í síðustu viku.
Pétur…thú ert ágaetlega laes er thad ekki?
Thetta minnisblad er frabaert til thess ad skilja atburdarasina betur. Stydur sum ummaeli, fellir önnur.
Tho svo ad menn seu ekki nafngreindir tha kemur fram stada theirra og hja hvada banka. Nafnid skiptir kannski minna máli. Thetta er skrifad til fólks sem ad veit um hvad málid snyst. Veit hverjir hittu hverja og hvar og thvi ótharfi ad minnast á thad. Ad hengja sig í slíkt og stíl minnisbladsins er fráleitt málefnalegt. Ad mikilvaegar upplýsingar seu “ómerkilegar” af thvi ad höfundur kann ekki (eda gerdi ekki i thetta sinn) ad skrifa 300 orda úrdrátt med vinnubrögdum “fraedimanna”, er hreinlega barnalegt í einfeldingshaetti sínum.
Thú adallega hengir thig i ad thér líkar ekki uppsetningin. En hvernig fannst thér letrid? Betra hefdi verid fyrir thig ad sjá upprunalega skjalid af thvi ad tha hefdir thu getad daemt thaetti eins og áferd á pappír og metid litinn á “Trúnadarmál”.
Og thú virdist virkilega, í fullri alvöru vera ad segja ad thad sé ekki skrýtid ad stjórnvöld hafi ekki brugdist vid advörunum um ad allt bankakerfid staedi frammi fyrir stórkostlegum vanda, jafnvel hruni, af thví minnisbladid sem innihélt upplýsingarnar sé svo gallad.
Thetta er svipad og ad segja ad sálfraedingur aetti ekki ad hjálpa manni sem segir “mér langar ad drepa mig” í stad “mig langar ad drepa mig”.
Má ég giska, thér mislíkar ad DO komi vel útúr thessu?
Thad veldur hneykslan hjá mér ef thetta er virkilega thad besta sem thú getur gert!
Pétur ætlar þú að segja mér það að hefðir þú verið t.d. forsætisráðherrann sem fékk að lesa þetta minnisblað, hefðir þú ekki tekið mark á því vegna þess að niðurstaðan var ekki tölusett eins og þú gerir jafnvel þó allir þessir punktar komi fram í skýrslunni? Þú ert nánast búinn að ljúka keppni í allri umræðu með svona bulli. Þér gefst hér með tækifæri á að viðurkenna að minnisblaðið umrædda gefur fullt tilefni til harkalegra viðbragða.
Vek athygli ykkar á athugasemd “the grand old man” hér fyrir ofan (GT).
Þú misskilur mig Gústi…. ég er ekki að tala um uppsetningu. Ég er að tala um að minnisblað sem þetta þarf að vera afdráttarlaust. Ekki óformleg og óljós frásögn af samtölum heldur samanþjappaðar ályktanir þess sem skrifar það. Með öðrum orðum eftir allt hið almenna tal þarf að svara spurningunni afdráttarlaust sem hljóðar svo: So What?
Jú, – Gunnar – líklega hefði ég og líklega þú líka tekið þetta minnisblað alvarlega, spurt menn hvern fjandann þeir væru að meina og svo framvegis. Alveg með þér í því. En það er jú okkar túlkun á minnisblaðinu. En ríkisstjórnin eða forsætisráðherra eða… ég veit ekki hverjir, gátu sossum túlkað þetta hvernig sem var. Sagði ekki Geir Haarde skömmu síðar og aðrir talsmenn ríkisstjórnarinnar jafnvel mánuðum saman eftir þetta að tal útlendinga bæri þess vott að menn skorti upplýsingar, þekktu ekki hvað bankakerfið stæði í rauninni traustum fótum o.s.frv.?
Svo er reyndar annað sem gleymist í þessari umræðu. Ef ég man rétt þá benti Yngvi Örn Kristinsson á það í Kastljósinu skömmu eftir síðasta Kastljósviðtal Davíðs að Seðlabankinn réði yfir þeim stjórntækjum sem nota þurfti til að hafa áhrif á framvindu og gjörninga fjármálafyrirtækjanna. Spurningin er þá – ef þetta er rétt – hvort Davíð (hann var jú formaður bankastjórnarinnar, þess vegna kenni ég minnisblaðið við hann)… hvort Davíð tók sjálfur viðvaranir sínar alvarlega?
Að lokum ef þetta innslag í MBL hefur farið framhjá ykkur í dag: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/24/sogdu_eitt_gerdu_annad/
Annars fínt þras hér að vanda.
http://blogg.visir.is/gb/2009/03/20/hvers-vir%c3%b0i-eru-minnisblo%c3%b0/
Það er ógnar vinna að vera vakinn og sofinn í því að ritskoða og hreinsa út ummæli sem ekki standast hina marxísku greiningu.
Hér leggur félagi Pétur á sig ómælda vinnu í þágu málstaðarins.
Ég vorkenni honum alla þessa vinnu og vökur í því sambandi og vil því benda honum á að það hljóta að vera til ennþá einhverjir sérfræðingar við rússneska sendiráðið sem geta aðstoðað hann við að kljást við þessa andófsmenn sem hér láta skína í sitt ófétislega og kontra-revolúsjonera trýni.
Byltingarmenn vorir verða að vera hressir og vel útsofnir til þess að geta unnið sín verk í þágu okkar öreigana…
Það er annars ekki einleikið hvað mér finnst gaman að því að stríða kommum. Þetta hefur ollið mér dálitlum heilabrotum og ég hef verið kominn á fremsta hlunn með að leita til sálfræðings til að fá botn í málið.
En síðan mundi ég eftir því frá því í æsku að það var náttúrlega alltaf lang skemmtilegast að stríða þeim sem eru frammúrskarandi uppstökkir og algjörlega húmorslausir…
Nú hætti ég þessu Jón Bragi og gef þér fullt frelsi til að gera þig að fífli. Þetta hefur nú verið meiri vinna fyrir þig en mig því þú hefur fyrir því að skrifa og skrifa…. ég þarf bara að ýta á Enter. Það er mun minni vinna. En hér eftir færðu að rausa að vild óáreittur endalaust inn í tímann sem endar í naflanum á þér.
Eitt vil ég þó segja. Það er einkennilega sjálfmiðaður rembingur þinn að halda að það eitt að ÞÚ skrifir athugasemd skuldbindi mig eða einhvern annan til að taka eftir því, álíta það svaravert eða gera svo lítið sem lesa það. Hvaðan kemur sú regla að ég eigi endilega að taka eftir þér? Taka mark á þér? Svara þér? Eða finnast þú eitthvað merkilegur? Þetta er þín eigin hugmynd sem er eftirfarandi: Jón Bragi er svo rosalega merkileg persóna að reki hann upp lítið rop skuli allir eftir því taka og spyrji hann spurninga skuli hann fá svar. Þetta er bara frekja og ekkert annað… krakkaleg frekja.
Ég sem er hrokagikkur dauðans læt mér ekki detta í hug þegar ég skrifa athugasemdir á blogg annarra að móðgast yfir því að þeim skuli ekki svarað eða höfundur hundsi þær og láti eins og þær séu ekki til. Vandamálið með þig er þessi frekja – ekki það sem þú ert að segja. Mér er alveg sama hvað þú segir…. En krafa þín um að eftir þér sé tekið og alls konar ályktanir sem þú dregur um innræti mitt vegna þess að ég tek ekki nótis af ÞÉR er ástæðan fyrir því að ég vil helst losna við þig.
Fjöldi manns hefur gert athugasemdir við mín blogg og það harkaleg og orðhvöt. Hefur mér likað það ágætlega. Mér finnst bara allt í lagi með það að menn séu með kjaft og leiðindi, nöldur og hvaðeina. Það sem ég þoli ekki er þegar menn eins og þú búa til nýtt umræðuefni….
…umræðuefnið “mér er ekki svarað” og “afhverju svarar þú mér ekki?” Þetta er lymskuleg krafa um að fá að stjórna umræðunni og láta hana fjalla um það sem manni sjálfum sýnist.
En megir þú bulla þér til ævarandi skammar og háðungar á bloggsíðum mínum hér eftir. Slóðirnar eru þrjár:
http://psychodoxa.wordpress.com/
http://tyrfingsson.wordpress.com/
http://marxdoxa.wordpress.com/
Kær kveðja og góða ferð.
PS: Hvers vegna opnar þú ekki þína eigin bloggsíðu? Það væri mér mikill heiður ef hún væri sett til höfuðs mér og hefði yfirtitilinn Anti-Pétur samanber Anti-Dühring sem Engels skrifaði. Til að opna flott blogg getur þú auðvitað farið á Moggann en WordPress er auvðitað mun virðulegra. Hér er slóðin og þú ert búinn að setja þetta inn á 5 mínútum:
http://wordpress.com/
Þeir segja nefnilega að gleraugnamafían og gáfumennirnir bloggi á WordPress og leggi sig ekki niður við Moggann og Vísi.
Jæja Pétur.
Fyrst vil ég biðja þig að hafa aungvar áhyggjur af því að ég þreytist við skrifin. Fyrir það fyrsta þykir mér gaman að skrifa og í öðru lagi hef ég haft vaðið fyrir neðan mig þegar ég hef séð hver ritstjórnarstefnan er hér. Sem sagt sú að eyða þeim kommentum sem ekki falla í kramið og átt komment mín á lager og er þá endurbirtingin létt og löðurmannleg.
Ég get ekki séð af mínum kommentum að ég hafi gert neinar kröfur um eitt eða neitt. Hins vegar hefði mér þótt það eðlilegt að sá maður sem á opinberum vettvangi viðrar skoðanir sínar með opnu kommentakerfi þori að svara þeim spurningum sem beint er til hans ekki síst vegna þess að sjálfur er hann ómyrkur í máli og oft dómharður.
Ég læt mér í léttu rúmi liggja hvaða skoðanir menn hafa en eitt þykir mér aumkunarvert og það er að kannast ekki við eigin skoðanir og látast í staðinn vera eitthvað allt annað.
Hver er til dæmis ástæðan fyrir því að þú tókst út þau skrif þín þar sem þú fórst á kostum við að hylla kommúnista-ávarpið. Hverjir eru það sem ekki máttu sjá það? Félagarnir í Samfylkingunni sem kannske hafa glæpst til að halda að þú sért einhver venjulegur jafnaðarmaður?
Eftirtektarvert er að þegar þú kemst í geðshræringu eins og innlegg þitt hér að ofan bendir til að þá grípurðu umsvifalaust í Marx, Engels eða einhvern álíka páfa.
Ég hef þóst sjá þess glögg merki að þú hafir í eingu skipt um skoðanir í pólitík frá því að þú varst í Fylkingunni fyrir nærri hálfri öld síðan þó að þú gerir allt sem þú getir til að leyna því.
Og taktu eftir; þær ályktanir sem ég hef dregið hef ég orðið að draga vegna þess að þú af einhverjum ástæðum vilt alls ekki ræða þínar pólitísku skoðanir heldur bara gjamma að auðvaldinu upp á gamla móðinn án þess að geta skýrt hvað þú vilt hafa í staðinn. Og að bjóða sig fram í prófkjöri án þess að þora að koma hreint fram það finnst mér einfaldlega vera óheiðarlegt.
P.s.
Orð eins og fífl, rembingur, rop, krakkaleg frekja, lymskulegt, bull, ævarandi skömm og háðung segja náttúrlega mest um þann sem lætur þau frá sér fara.
Heyrðu Pétur minn.
Ég nenni þessu nú varla lengur. Komið vor og svona.
Enda er þessarri litlu stúdíu minni lokið, en gekk út á það að ganga úr skugga um hvort það er virkilega hægt að lifa hátt í sextíu ár án þess að vitkast nokkuð að ráði.
Niðurstöður verða ei birtar hér enda held ég að flestir lesendur geti ráðið í þær sjálfir…
Megi svo Marx, Engels, Lenín, Pol Pot, Stalín og aðrir góðir vættir vera með þér.
P.s.
Gat enginn sagt þér að það verður að loka á sjálfa IP-töluna? Það dugir ekki að loka bara á meil-adressu.
Pétur, Pétur, Pétur.
Er það ekki kaldhæðnislegt að hér (http://psychodoxa.wordpress.com/) má lesa akkúrat nákvæmlega, algjörlega eins minnisblað og það sem kom úr Seðlabankanum. Maður fer á fund í útlöndum og reifar það sem fyrir augu og eyru bar, án niðurstöðu.
Þetta var besta afmælisgjöfin sem ég hef fengið enn þetta ár.
bwahahaha er eina “orðið” sem hér dugar!