Brennum betlikerlinguna!

Nú ganga þeir hart fram í Sjálfstæðisflokknum og leita logandi ljósum að betlikerlingu þeirri sem komið hefur íhaldinu í þau hræðilegu vandræði að hafa orðið fyrir barðinu á örlæti efnaðra manna. Hver bað um þessar milljónir? Komið með kerlinguna og kastið henni á bálið!

Einkennilegt þykir mér að Sjálfstæðismenn skuli vera á einu máli um að styrkjamálið ógurlega sé flóknara en að gefa og þiggja. Fyrir þeim virðist málið mun flóknara. Verður það að teljast undralegt því innanbúðar í Valhöll er hver júristahausinn upp af öðrum.

Nær formaðurinn að kafa til botns?

Það virðist skipta máli hver bað FL-Group og Landsbankann um fjárstyrki. Ef svo er – skiptir þá ekki líka máli hver bað einhvern um að biðja þessi fyrirtæki um pening og jafnvel hver bað einhvern um að biðja enn annan um að biðja ráðamenn í þessum fyrirtækjum að styrkja Sjálfstæðisflokkinn? Og getur keðjan ekki verið mun lengri… maður bað konu um að biðja karl um að biðja kerlingu um að biðja manneskju um að biðja persónu um að biðja lögaðila… útí það óendanlega.

Ég er ekki undrandi á því að vesalings formaðurinn þurfi langan tíma til að komast til botns í atburðarásinni. Hann getur ábyggilega ekki haldið niðrí sér andanum nógu lengi til að kafa alla leiðina niður á fast.

Eru betlikerlingarnar ábyrgar?

Stöldrum nú við. Þarf það að vera siðferðilega ámælisvert ef einhver tekur það upp hjá sjálfum sér að biðja Landsbankann, FL-Group, Vinstrigræna eða CIA að styrkja Sjálfstæðisflokkinn með fjárframlögum? Ég sé í sjálfu sér ekkert athugavert við það vegna þess einfaldlega að í því felst í sjálfu sér engin athöfn. Nema menn telji sér trú um að sá sem ber fram bónina hafi jafnframt fullkomið vald yfir athöfnum hins. Þannig er það auðvitað ekki.

Takið eftir að ég sagði „tekur það upp hjá sjálfum sér”. Það er fremur ólíklegt að einhverjir Sjálfstæðismenn hafi farið á stjá og hringt eða gengið milli fyrirtækja með betlistaf í hendi nema stofnanir flokksins hafi hvatt til þess. Skiptir þá einhverju máli hver það var sem bað FL-Group eða Landsbankann um pening? Varla. Öllu máli virðist skipta hve fjárhæðirnar voru miklar. Er sá sem bað þessi fyrirtæki um peninga ábyrgur fyrir því hvað þau voru rausnarleg? Ekki heldur.

Sælla er að gefa en þiggja

Fyrst Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki amast við þeim sem gengur um með betlistafinn hver er þá siðferðilega ábyrgur? Getur Sjálfstæðisflokkurinn gert FL-Group eða Landsbankann ábyrg fyrir því að 60 milljónir runnu í sjóði hans? Það kemur ekki til greina því fulltrúar flokksins höfðu það í hendi sér hvort þeir tóku við slíkum upphæðum. Þar með eru þeir einir siðferðilega ábyrgir sem tóku við þessum milljónum. Ekki þeir sem báðu um þær né hinir sem gáfu þær.

Sú atburðarás sem skiptir siðferðilega máli er því ekki flóknari en að gefið var og þegið og sá sem nú þarf að meta athafnir sínar er fyrst og fremst sá sem þáði.

Og hver þáði þessa peninga með þökkum á sínum tíma? Enginn sem gegnir trúnaðarstöðum fyrir flokkinn þykist hafa haft grænan grun um þennan fjáraustur nema Geir H. Haarde. Hann hefur sagt að hann hafi vitað af og tekið við þessum fjárframlögum.

seenoevilmonkeys

Heyr’ ekki, sé ekki, tal’ ekki

Nú kunna menn og konur í Sjálfstæðisflokknum sem gegna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn að segja satt. Það má vera að þau geti öll tekið undir með Birni Bjarnasyni og sagt að þau hafi ekkert um þetta vitað og hefðu aldrei tekið í mál að flokkurinn tæki við svo miklu fé – heilum 60 milljónum frá tveimur fjármálafyrirtækjum. Það tjáir ekki að tefla fram þessum rökum og halda að þar með séu kjörnir trúnaðarmenn og þingmenn lausir allra mála vegna þess að þeir „vissu ekki neitt” og „hefðu aldrei” liðið þetta.

Staðreyndin er sú að Sjálfstæðisflokkurinn tók við þessu fé. Einhverjir umboðsmenn hans gerðu það. Það voru engir aðrir að verki – hvorki þeir sem gáfu né þeir sem bönkuðu uppá með betlistafinn. Telji siðferðishetjurnar í Sjálfstæðisflokknum þetta hafa verið ámælisvert geta þær ekki með öllu skotið sér undan ábyrgð. Því spurningin er hver átti að hafa eftirlit með þessum umboðsmönnum eða fulltrúum? Hvernig gátu þeir framið þennan verknað sem mönnum þykir svo ámælisverður nú?

Ég er hræddur um að formaður Sjálfstæðissflokksins átti sig ekkert á því að þó honum takist að finna „sökudólginn” og allir á íhaldsbænum reyni að láta málið snúast um hver bað hvern um hvað – þá þarf hann að svara nokkrum spurningum. Leiðindin eru nefnilega ekki búin.

Var þetta ekki bara sjálfsagt og eðlilegt 2006?

Voru til einhverjar reglur um það í Sjálfstæðisflokknum hvað mætti taka við stórum fjárframlögum frá fyrirtækjum? Ég vil nú leyfa mér að efast um þetta. En segjum að svo hafi verið. Annað hvort hefur upphæðin verið lægri eða hærri en reglur leyfðu. Þá er einfalt að skera úr um hvort einhver braut reglur og finna hver það var.

Líklega voru engar reglur til um þetta hjá Sjálfstæðisflokknum og trúnaðarmenn flokksins því ekki sekir um agabrot. Nú árið 2009 þykir mönnum þetta aftur á móti siðferðilega ámælisvert. Svo ámælisvert, hneykslanlegt og voðalegt að þeir telja sjálfum sér vafalaust trú um að þeir hefðu verið sama sinnis 2006 ef þeir bara hefðu vitað……

Ég er ekki viss um það. Sjálfstæðisflokkurinn tók við þessum milljónum frá FL-Group og Landsbankanum og trúnaðarmönnum hans þótti ekkert athugavert við það. Þeim þótti þetta svo sjálfsagt að þeir sögðu öðrum ekki einu sinni frá því. Eða öðrum fannst þetta líka svo sjálfsagt að þeir muna ekki eftir að þeim var sagt það. Eða….. mönnunum sem ekkert þykjast vita núna þóttu tölurnar í ársreikningum flokksins ekkert undarlegar eða hirtu ekki um að spyrja um sundurliðun. Hver bera ábyrgð á því?

Árið 2006 var þetta líklega allt saman sjálfsagt og eðlilegt. Auðmenn áttu pening eins og skít og keyptu sér velvild þvers og krus í samfélaginu. Og þeir studdu fólk í prófkjörum og flokka í framboðum. Ekki alla reyndar og suma meir en aðra. Þarf einhver að vera undrandi á því að í öllum gauraganginum hafi Hannes Smárason hent 30 milljónum í Sjálfstæðisflokkinn og Sigurjón Þ. Árnason 25 milljónum? Voru þetta ekki smáaurar þá? Er það ekki þess vegna sem enginn tók eftir þessu…. að þetta voru í rauninni smáaurar?

Og er það ekki bara vegna þess að Ísland er á hliðinni sem þetta verður allt í einu móralskt? Talaði einhver í Sjálfstæðisflokknum um „gildi” fyrir hrunið mikla?

12 svör

  1. Loksins er eitthvað mælt af viti hér!

  2. Göngum hreint til verks Pétur og spyrjum líka hvort að ekki sé eðlilegt að Samfylkingin viðurkenni einnig sína ábyrgð á svipuðum styrkveitingum, þ.e.a.s. á því að hafa þegið styrkina. Þó að um lægri upphæðir sé að ræða er engu að síður um það að ræða að Samfylkingin hafi sótt rúmlega 30 milljónum meira þetta árið en fjölmörg ár á undan og árið á eftir.

    Tökum til óspilltra málanna og hreinsum burt flokksræðið!

  3. Hvað er að flokksræði, ef það er notað fyrir fólk !

    Borgaraflokksmenn virðast ekki skilja að þeir eru sjálfir með flokksræði !

    Ef þú skipar þér í einhvern flokk þá ertu með flokksræði !

    Hvers vegna eru þessir aðilar sem eru framalega í Borgaraflokknum að ,,klæmast” á svona atriðum ?

    Hvers vegna er þetta fólk ekki að gera það sem það gerir best ?

  4. Mjög flott grein hjá þér Pétur.

    Betlikerlingin verður aldrei nema blóraböggull hver sem hún/þau voru. Flokkurinn tók á móti þessum fjármunum og það fimm mínútum áður en núverandi lög um hámarksupphæð tóku gildi. Það er mergurinn málsins.

    Gjörningar Sjálfstæðismanna sem nú afhjúpast svo nöturlega sem raun ber vitni, breyta ekki þeirri sjálfsögðu kröfu að ALLIR STJÓRNMÁLAFLOKKAR VERÐA NÚ AÐ OPNA BÓKHALD SITT og tilgreina alla gefendur og upphæð styrkja AFTUR FYRIR ALDAMÓT.

    Það skiptir ekki máli þó þessum lögum um hámarksframlög hafi ekki verið breytt fyrr en 1. janúar 2007. Ef sitjandi flokkar ætla að endurheimta trúverðugleika þá er þetta nauðsynlegt. Að opna bara á síðastliðin ár dugir ekki. Hér duga engir málamyndagjörningar

    Hvað hafa t.d. kvótakóngarnir verið rausnarlegir og þá við hverja?

    Eins er býnt að hver einasti þingmaður, að fráfarandi þingmönnum meðtöldum, opni sínar bækur og geri hreint fyrir sínum dyrum um hversu miklar eða litlar upphæðir þeir þáðu í til að fjármagna prófkjör sín á umliðnum árum. Geng út frá því sem gefnu að þingmenn séu allir heiðarlegir og vandir að virðingu sinni og skora því á þá að verða við þessari einföldu bón.

  5. Hvað ætli Jóhannes í Bónus hafi lagt í prófkjörssjóð hjá Guðlaugi Þór, þegar sá síðarnefndi fór á móti Birni Bjarnasyni? Það væri gaman að fá að vita það.

  6. Flott grein nafni, leiftrandi og skemmtileg.
    Þar sem það “vildi svo óheppilega til” fyrir FLokkinn að þetta mál kom einmitt upp á þessum tíma fer maður að velta fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að gera eitthvað bráðabirðgar uppgjör á starfsemi þessara afla í gegnum áratugina. Það skal enginn segja mér að hér sé um eitthvað einangrað dæmi að ræða. Nú vantar tilfinnanlega alvöru rannsóknarblaðamenn sem tækju að sér að fletta, lag fyrir lag, ofan af spillingaröflunum, alvöru rannsókn sem næði yfir fjármál, einkavinavæðingu, stöðuveitingar, símhleranir, hermang og svo mætti lengi telja.
    Þar sem við stefnum nú á vit nýrra tíma (vonandi) þar sem almenn gildi í samfélaginu vera önnur en þau sem verið hafa við líði undanfarna áratugi væri ekki úr vegi að alvöru uppgjör ætti sér stað.

  7. Apamyndin er einstaklega viðeigandi og skemmtileg með þessum pistli.

    :)

    Margur FL-okksmaðurinn verður af aurum api.

  8. Margt gott um greinina. Hún er skemmtileg aflestrar og í henni
    margar áhugaverðar hugleiðingar. Það ber hins vegar að hafa hugfast
    að greinarhöfundur er ekki hlutlaus. Hann er í framboði fyrir ákveðin
    stjórnmálaflokk. Það sem uppúr stendur er þetta:
    Ljóst er að bankar og fjármálastofnanir eru burðarásar í fjármögnum eða
    smýkjum flokkanna. Þar er einginn undanskilinn. Það leiðir hugan
    að því hvort framangreind staðreynd ,geri ekki í raun alla flokka , hvort
    sem þeir fendu 15- 20 eða 50 miljónir frá bönkunum tortryggilega,
    þegar kemur að því að meta með hvaða hætti þeir tóku á málum viðkomandi
    stofnanna í aðdragandi bankahrunsins. Það er allt of mikil einföldun að
    beina kastljósinu eingöngu að Sjálfstæðisflokknum að ég tali nú ekki um
    að einskorða umræðuna við árið 2006. Hvað um hin árin, Hvað um stuðning
    við flokkana fyrir sveitarstjórnarkosningar og hvað um stuðning við
    einstaka stjórnmálamenn í prófkjörum. Allt upp á borðið og það er einföldun og lýðskrum að einangra þessa umræðu við Sjálfstæðisflokkinn.
    Þó er ég ekki í þeim flokki.

  9. Sæll Pétur.

    Mig langar að spyrja þig einnar spurningar sem óákveðinn kjósandi.
    Er það yfirlýst stefna VG og Samfylkingar að beita ungt fólk í hugsjónabaráttu efnavopnum, berja það með kylfum og ota vélsögum á milli lappana á þeim.
    Það væri gaman að fá svar við því.

    Kær kveðja.

  10. Aðeins 13 skef í viðbót segir KK á sínum Blús 2006.

    12 sporin eru mikill áfangil ífii margan mannin og fjölskyldu ef hann á
    svoleiðis eftir allan vín horroinn.

    Pétur !!! Við fáum ekki einu sinni sem einstaklingar og þjóð að raða í
    kjörklefanum, hinu einu sanna prófkjöri.

    Fáum ekki einu sinni einföldustu breytingar á stjórnar ská, hvað þá heldur
    stjórnlagaþing!!

    Er þetta lýðræði á tölvuöld? Ég segi Nei og er GÓRILLUR og STEYPIREYÐUR
    er þetta BOÐLEGT svokallaðu lýðræði ? Vika í kosníngar til næstu 4 ára ?

    Að einn FLOKKUR skuli fá að ráða þessu öllu eins os s.l. 50- 60 ár er hneyksli og
    einræði og eigi alla stjórnsýslublækurnar líka, er sér horror.

    Og nú skal gengið til kosninga eftir viku og Stalínistaflokkurinn sem kallar sig Sjálfstæðis þvílik öfumæli.

    Og við hin lúpurnar leyfum þessum landeyðum oð komast upp með máll þóf og röfl er hneysa.

    “FÓLK ER FÍBL ” sagði einn óliukóngurinn forðum daga, það er kominn nýr = N1

    Pétur ég held að ekkert dugi á þessa þjóð okkar, nema Baneitraður BLÚS til að við
    eigum séns meðal þjóða heims.

    Byrjum á Kameljóninu Bob Dylan sem var með skífu C.D. ´97 um ástandið hér núna 2009, svo er karl skattinn að koma með eina í lok mánaðar BAN-eitraður
    sem fyrr þó að haNN ÆTTI KANNSKI HEIMA Hjá eldri borgurum.

    TREGASVEITIN væri sómi að taka nokkur lög eftir þennan baráttujaskl. þó ekki
    væri nema BlÚSINN á Time out of Mind ´97 Ditrty Roat Blus er bankastæti á íslandi, sem enginn þorir að fara í nema Dylan og TREGASVEITIN sem ligga í bankahruni og drykkjy fyrri ára. Bið að heilsa BADDA-Blús þó að hann sé frammari.

  11. Alltaf gaman að sjá Georg Bjarnfreðarson (fyrirg. P. Tyrfingsson), þenja sig af heilagri vandlætingu hér að því er virðist í þeim tilgangi einum að leyna sínum eigin skoðunum sem hann að einhverjum ástæðum virðist álíta að ekki þoli dagsljósið.

  12. Bara að benda þér á að fyrir utan alla marxista-þvæluna sem þú varst með á rás 1 í dag þá ferð þú með fákunnáttufullyrðingar eins og það að segja að það sé alveg fáránlegt að Ísland geti verið með eigið flugfélag sem standi í samkeppni (= verður að vera ríkisrekið).
    Tókst sem samanburð að eingum dytti í hug að Malmö í Svíþjóð sem er svipað að mannfjölda og Ísland gæti verið með eigið flugfélag.
    Staðreyndin er sú að það er til blómlegt einkarekið flugfélag í Malmö sem heitir Malmö Aviation….

Skildu eftir svar