Posted on 21. október 2008 by Pétur Tyrfingsson
…er auðvitað Óli Björn Kárason. Þetta er maður sem hefur upplýst þjóðina árum saman um ranghala og völundarhús viðskiptalífsins. Sagt okkur kjaftasögur héðan og þaðan og spáð og spekúlerað. Borgaralega forpokaður auðvitað, helblár og réttrar trúar. Aldrei hefur vottað fyrir neinni gagnrýnni hugsun um kapítalismann hjá þessm spámanni viðskiptalifsins. Alltíeinu upplýsir hann fáfróðan mörlandann um [...]
Flokkað undir: Dægurþras | 7 ummæli »
Posted on 16. október 2008 by Pétur Tyrfingsson
Tryggvi Þór Herbertsson hefur hætt störfum fyrir Geir Haarde. Var þetta ekki maðurinn sem talaði um að fjármálakreppur væru hreingerningar…. krísan væri svona eins konar skúr og skrubb á leiðinlegum sunnudegi eftir partí?
Ég velti því fyrir mér hvort Tryggvi hafi þá lokið skúringum og hafi ekki meir að gera. Ísland fór nefnilega alveg á hvolf eftir [...]
Flokkað undir: Dægurþras | 8 ummæli »
Posted on 27. apríl 2008 by Pétur Tyrfingsson
Seint verð ég sakaður um að vera aðdáandi Árna Johnsen. Og sjaldan hef ég haft samúð með hagsmunapoti hans. Reyndar tel ég hann vera dæmigerðan hreppapólitíkus sem finnur sér erindi til að reka að því er virðist í þeim eina tilgangi að afla sér fylgis í prófkjörum og kosningum. Í hans bók hefur aldrei verið [...]
Flokkað undir: Dægurþras | 3 ummæli »
Posted on 27. mars 2008 by Pétur Tyrfingsson
…alveg hreint óskaplega þessa dagana. Kannski ergir það mig meira einmitt núna vegna þess að það er svo mikið að gerast sem ég á bágt með að skilja. Og þegar ég tek eftir mörgu sem ég botna ekkert í þá á ég til að vera önugri og ergilegri svona almennt. Auðvitað er það þessi hringavitleysa [...]
Flokkað undir: Dægurþras | Leave a Comment »
Posted on 26. febrúar 2008 by Pétur Tyrfingsson
Undarleg þessi fréttabóla um þingmanninn sem var að spila póker niðrí bæ. Ég verð nú að segja eins og er að fréttaefnið var líklega ekki að Birkir Jón hefði verið að spila heldur hitt að menn hafi einhvern veginn fundið smugu til að fara á snið við lög og reglur og gera mönnum fært að [...]
Flokkað undir: Dægurþras | 3 ummæli »