Kómísk forsjárhyggja á Landspítala

Ég verð að bregða mér úr prófkjörshamnum því ég rak mig á kómíska forsjárhyggju í formi ritskoðunar í dag. Alveg hreint sprenghlæilega og það á Landspítalanum sem er stærsti vinnustaður landsins. Sagan er svona:
Þannig er mál með vexti að það er bloggsíða á mínu nafni á wordpress.com sem átti að vera um hugræna atferlismeðferð. Þar [...]

Lýðurinn og tungumálið

Andra Snæ mæltist býsna vel í mótmælunum í gær. Nema eitt. Honum líkar ekki við orðið „lýður”. Hvað er að þessu orði? Er eitthvað athugavert við orðin lýðfrelsi, lýðfræði (demography), lýðháskóli, lýðhylli, lýðréttindi, lýðræð, lýðveldi svo ekki sé nú talað um verkalýðinn eða öreigalýðinn. Hvað vill hann setja í staðinn fyrir þennan „lýð”? Eitthvað flatt [...]

Kreppan og sálarháskinn

Konan mín hefur verið að nuða í mér að skrifa eitthvað „til að róa þjóðina”. Rétt eins og maður nái til allrar þjóðarinnar! Rétt eins og hún taki eitthvað mark á manni!
Ég skil hana þó vel því hún er vafalaust þessi „þjóð” sem þarf að róa. Enda byrjaði hún stelpa í litla sæta Iðnaðarbankanum og [...]

Mogginn á að vera leiðinlegur

Ég held að eina ástæðan fyrir því að Mogginn er ekki dauður fyrir nokkrum árum er að Gunnar Smári Egilsson keypti ekki stórkostlega “viðskiptahugmynd” mína. Ég hitti hann á förnum vegi og bauðst til að selja honum plottið fyrir hálfa miljón. Hugmyndin var sú að Fréttablaðið gæfi út kálf einu sinni í viku sem héti [...]

Þjóðarstoltið

Einkennilegt með þessar tilfinningar. Einkennilegt með tilfinningar Íslendingsins. Eða er þetta bara ég? Nú eru tveir landar okkar í alþjóðapressuna. Hannes Gissurarson skrifar í Wall Street Journal og Hildur Helga Sigurðardóttir í Times. Áður en ég les það sem þau segja og óháð því hvað þau eru að rausa finn ég fyrir einhverju… ja, hverju? [...]