Blogg og þus – tillaga um málbætur

Aldrei hefur mér líkað þetta orð „blog“ – sem við Íslendingar getum auðvitað ekki látið vera þegar við tökum það upp án þess að bæta við einu géi og breyta nafnorðinu í „blogg“ og sögnina lögum við að lögmálum málsins með því að tala um að „blogga“. Segir þetta ekket annað en „blog“ er of [...]

Andlitslyfting…

Nei, þetta fjallar ekki um hina geysivíðtæku endurnýjun í framvarðasveitum allra flokka þessa dagana. Ég var bara að breyta um útlit á blogginu mínu. Ákvað að finna eitthvað hlýlegt viðmót og komst að því að þetta hér fer mér ágætlega. Soldið svona þið vitið…. en það venst.