Posted on 14. mars 2009 by Pétur Tyrfingsson
Meðan ég man… Prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík lýkur í dag. Varla verður sagt að hávaðinn og lætin hafi verið mikil og truflandi. Litlir peningar í umferð og frambjóðendur sem standa eins og hanar á haug vísast ekki aðlaðandi um þessar mundir. Reyndar trúi ég ekki á harðvítuga prófkjörsbaráttu. Annað hvort veit fólk hver maður er [...]
Flokkað undir: Prófkjörsblogg | 8 ummæli »
Posted on 5. mars 2009 by Pétur Tyrfingsson
Nú halda prófkjörskandidatar fundi í erg og gríð. Við þembum okkur upp í hæfilegan rembing, stöndum eins og hanar á haug og gölum boðskapinn yfir öllum dýrunum á bænum.
Aldrei hefur mér gengið vel að gera neitt einn. Ég er svo mikill félagshyggjukauði. Þá er úr vöndu að ráða. Ekki getur maður slöttólfast í prófkjörsslag án [...]
Flokkað undir: Prófkjörsblogg | 5 ummæli »
Posted on 3. mars 2009 by Pétur Tyrfingsson
Samfylkingin þarf að taka af skarið og lýsa því yfir að hún stefni að því að mynda Alþýðustjórn með Vinstrigrænum eftir kosningar. Þeir sem gefa kost á sér í framboð fyrir Samfylkinguna þurfa að lýsa hug sínum til þessa máls því þetta verður ein fyrsta spurningin sem flokkurinn þarf að svara þegar ljóst er hverja [...]
Flokkað undir: Prófkjörsblogg | 22 ummæli »
Posted on 2. mars 2009 by Pétur Tyrfingsson
„Evrópumálið” svokallaða snýst ekki um afstöðu okkar til þess hvort aðild að Evrópusambandinu kemur til greina. Það snýst ekki um spurninguna: Með eða á móti aðild? Verkefnið felst í því fyrst og fremst að þjóðin svari þessari spurningu en ekki að einhverjir stjórnmálamenn, lukkuriddarar og nöldurseggir ákveði það fyrir hennar hönd. Allra síst að Sjálfstæðisflokkurinn [...]
Flokkað undir: Prófkjörsblogg | 12 ummæli »
Posted on 2. mars 2009 by Pétur Tyrfingsson
Nú er að bretta upp ermarnar og hefja „prófkjörsáróður”. Eins gott að hafa sig allan við því ekki eru nema nokkrir dagar til ráðstöfunar. Nú kann ég ekki að skrifa stutta stefnuskrá í einum grænum kvelli. Eina færa leiðin fyrir mig er einfaldlega að skrifa greinar eins og vitlaus maður um afstöðu mína til helstu [...]
Flokkað undir: Prófkjörsblogg | 3 ummæli »